Sælar stúlkur.
Mikil áhugi er innan vébanda KSÍ að fá fleiri konur til dómarastarfa.
Hugmyndin er að halda dómaranámskeið eingöngu fyrir konur.
Farið verður yfir knattspyrnulögin og síðan mun Gylfi Orrason fara í praktísku
hliðina á dómgæslunni.
Í framhaldi munum við síðan finna verkefni við hæfi þar sem dómaratríóið yrði
eingöngu skipað konum.
Í fyrrasumar var haldin riðlakeppni EM í U-19 kvenna hér á Íslandi.
Dómararnir voru eingöngu konur enda er það stefna hjá FIFA að konur dæmi alla
kvennaleiki á vegum þess.
Ef vel tekst til í þessu átaki er ekkert því til fyrirstöðu að tilnefna konur á FIFA
listann í framtíðinni.
Námskeiðið verður í höfuðstöðvum KSÍ sunnudaginn 24. febrúar.
Allar konur sem hafa áhuga á þessum málaflokki eru hvattar til að mæta og gildir þá
einu
hvort einhver dómarareynsla er til staðar eða ekki.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í námskeiðinu sendu þá póst á
magnus@ksi.isMeð kveðju,
Magnús Jónsson.
Dómarastjóri.
KSÍ.
S: 510 2909.
GSM: 699 5119.