Þar sem fótbolti er lífið!!

26.10.2007 15:14:12 / keflo

Æfingatímar

Blessaðar stelpur!

 

Æfingatímarnir eru komnir á hreint og verða þeir eins og í fyrra. 

Mánudagar 17.20 - 18.50 - hálfur salur 

Miðvikudagar 19.10 - 2040 - heill salur 

Föstudagar 16.30 - 18.00 - hálfur salur 

 

Þetta eru æfingatímarnir í höllinni en æfingatímarnir í akademíunni verða auglýstir síðar. Næsta æfing verður á mánudaginn 29.okt.

 

kveðja

Petta Morthens  


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 11:28:04 / keflo

ATH. Breyting það er fundur kl. 19:30 en ekki 20:00 í kvöld !!!!!!!

Stelpur fundurinn í kvöld er kl. 19:30 en ekki 20:00. Látið það berast ;) .......


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 22:06:41 / keflo

Fundur á morgun kl. 20:00 í K húsinu

Sælar gellur það er fundur með stjórninni og Porca niðri í K húsi kl. 20:00. Allar að mæta !!!

 

kv. Gudda grís


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 11:37:07 / keflo

KSÍ Hófið ....

Ég vil bara þakka ykkur stelpur fyrir skemmtilegt kvöld. Ég skemmti mér bara ágætlega á þessu KSÍ hófi. Ég vil eindregið biðja ykkur um að setja inn á síðuna myndir af hófinu, bæði KSÍ hófinu og Keflavíkurhófinu, ef þið tókuð einhverjar. Væri gaman að sjá eitthvað af þessum myndum. 

 kv.

Gudda grís.


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.10.2007 13:01:00 / keflo

Borga 3000 kr. vegna KSÍ hófsins !!!

Sælar stúlkur,

Það á að greiða 3000 kr. per mann á hófið. Til að greiða hringið í Guðnýju í stjórninni s: 895 - 4488. Þetta þarf að gerast í dag !!!!

 Koma svo ...... ;)

Stelpur ég lét rútuna koma klukkan hálf sjö að ná í okkur og fara með okkur í Rvk. ;)

Allar að koma með góða skapið á morgun... þýðir ekkert annað. hehehe

Áfram Kefló


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 10:06:45 / keflo

LOKA SÉNS !

Jæja, stelpur eru þetta eðalliðið sem fer á hófið:

Lilja + maki , Inga Lára, Guðný, Björg Ásta, Dúfa, Ester, Anna Rún, Eva, Brynja, Bryndís, Helena, Justyna, Agnes og Guðrún.

Íris sagðist þú ekki komast ?

Það er verið að stefna á það að fá bara litla rútu bara fyrir okkur sem fer með okkur fram og tilbaka.

Ég myndi bara stefna á það að láta partýið byrja milli 16 - 17 en húsið opnar 19:00 en ég býst ekki við því að við komum ákkúrat á slaginu.

Endilega látið mig vita hvenær þið getið komist og hvort þessi tími hentar ykkur. ;)

 Áfram Keflavík !!!!!!!!!!!

(Gudda Grís)


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 08:33:30 / keflo

Dagskráin á KSÍ hófinu !!!!

Lokahóf knattspyrnumanna fer fram á Broadway föstudaginn 19. október næstkomandi. Að loknu borðhaldi verða veittar viðurkenningar, sýningin "George Michael í 25 ár" og hljómsveitin Eurobandið leikur síðan fyrir dansi.

Dagskrá:

Húsið opnar 19:00

Kvöldverður

Viðurkenningar til leikmanna og félaga

Sýningin George Michael í 25 ár

Eurobandið leikur fyrir dansi

Matseðill:

Sjávarréttasúpa með risahörpusk

Kryddhjúpaður lambahryggvöðvi með fondant kartöflum og truflusósu með villisveppum

Súkkulaðiþrep með vanillusósu og ferskum jarðarberum

Það kostar 6000 kr á hófið en stjórnin er tilbúin að borga helming þannig það verður að hámarki 3000 kr. á mann en það gæti orðið minna. :)

Það er rúta tilbaka eftir hófið fyrir þær sem vilja .......

Ég er til í að halda smá fyrirpartý ef það er stemmning fyrir því .....

 kv. Gudda grís


» 11 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 23:18:01 / keflo

KSÍ Hófið !!!

Sælar stelpur ætlaði bara að athuga hvernig stemmningin væri fyrir KSÍ hófinu ;) Endilega commentið og segið ykkar skoðun. Þetta yrði mjög gaman ef við myndum fara margar saman.

Ksí hófið er á föstudeginum 19. október kl. 19.00 opnar húsið en ég býst við því að við mætum samt seinna en það. Hins vegar held ég að það verði rúta þannig að allir eru með pottþétt far heim.

 kv.

Gudda grís.


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 22:50:19 / keflo

Lokahófið!!!

Jæja þá var það lokahófið sem haldið var laugardaginn síðasta og tókst það bara með miklum ágætum. Dagurinn byrjaði með því að allar hittust heima hjá Guddu grís og reynt var að finna skemmtiatriði til að hafa á hófinu og fundið var ákveðið þema fyrir kvöldið - við erum auðvitað alltaf jafn snemma í þessu :) hehehe Við enduðum svo bara í blómavali og keyptum skemmtilegt skraut sem við höfðum um hálsinn allt kvöldið og keypt var glimmer til að setja á handleggina og í andlitin - sem reyndist svo ekki jafn fallegt um leið og límið þornaði hehe. Einnig var hverri og einni gefið ákveðið nafn sem hún bar allt kvöldið, til að mynda voru nöfn eins og perrinn, pimpinn, mamman, alkinn, mellan, cata strofa, kjúllar 1 - 4 o.fl. Við fengum svo afnot af húsi tvíburanna (Bryndísar og Brynju) fyrir fyrirpartýið og viljum við þakka þeim innilega fyrir það og vonandi gengum við sæmilega frá eftir okkur ;)

Um átta leytið var stefnan sett á Ránna þar sem við mættum galvaskar en dagskrá kvöldins var hlaðin löngum ræðum, viðurkenningum og ýmsum skemmtiatriðum, sem strákarnir sáu aðallega um þar sem við fengum að sleppa við okkar ( ótrúlegt að við skyldum eyða öllum þessum tíma í þetta og fengum svo ekki einu sinni að sýna það ;)  hehehe). Allavegana boðið var upp á dýrindis mat og hámuðum við hann í okkur ásamt því að skroppið var á barinn með nokkurra mínútna millibili (kannski smá ýkt). Nokkrar voru orðnar skrautlegar þó engin hafi beint verið skrautlegust en kannski pimpinn hafi hlotið vinninginn í því ef nefna ætti einhverja. Fengum við svo Ásdísi djammara í för með okkur þetta kvöld og var það algjör snilld.

Vil ég þó eindregið minna á það að sárt var saknað fyrirliðans okkar Lilju og snillingsins hennar Dúfu en við vonum að þær hafi skemmt sér vel þetta kvöld því við gerðum það tvímælalaust.

Mikið var um viðurkenningar á hófinu og vil ég óska þeim til hamingju sem hlutu þær en viðurkenningarnar voru eftirfarandi:

2. flokkur

Efnilegasti leikmaðurinn og besti félagi - Bryndís Bjarna

Besti leikmaðurinn - Eva Kristins.

Meistaflokkur

Efnilegasti leikmaðurinn - Anna Rún.

Besti félagi - Dúfa

Besti leikmaðurinn - Lilja Íris

Gullskóinn hlaut Guðný

Silfurskóinn hlaut Danka

Fallegasta markið - Danka (markið í Fjölnisleiknum - hreint frábært )

Tímamótaleikir - Lilja Írisi og Guðný en báðar hafa spilað 50 leiki fyrir Keflavík.

Landsleikir á árinu - Guðný

Viðurkenningar fyrir fyrsta meistaraflokksleikinn sinn hlutu nokkrar hnátur og man ég ekki alveg nákvæmleg hverjar þær voru þannig ég sleppi að telja þær upp en óska þeim innilega til hamingju með þennan merka áfanga.

Einnig viljum við þakka stjórninni fyrir rósirnar sem við fengum en hún hefur stutt vel við bakið á okkur og viljum við þakka innilega fyrir þann stuðning því við hefðum ekki getað þetta án hennar :)

Ekki má gleyma skemmtiatriðinu hjá Pumasveitinni en  þar var alkinn okkar fenginn til að taka þátt í drykkjukeppni og var alveg mögnuð. Hún drakk bjórinn og skotin eins og vatn. Ekki margir sem geta toppað það ;)

 Jæja að loknum viðurkenningum og skemmtiatriðum þá var það Stuðbandalagið sem spilaði fyrir dansi og var ansi mikið tjúttað á gólfinu og feiknastuð, ásamt því að það var rölt milli þeirra fjölmörgu skemmtistaða sem eru í Kefló :) Vona ég að allar hafi svo verið hressar daginn eftir því ég var ansi hress og var vöknuð kl. 8.00 hehehe

Takk fyrir skemmtilegt kvöld stelpur og vonandi skemmtuð þið ykkur jafnvel og ég.

Adios

Gudda Grís.

 


» 5 hafa sagt sína skoðun


Myndir
Besta félagið